Læsi á stöðu og baráttu kvenna

Í tilefni af Kvennaári 2025! 

Hér má kynna sér dagskrána!

Almenningsbókasöfn um land allt sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins Læsi á stöðu og baráttu kvenna í tilefni af Kvennaári 2025. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með lestur, samveru og lestrarupplifun í forgrunni. Á Íslandi, rétt eins og austan hafs og vestan, höfum við upplifað bakslag í jafnréttisbaráttunni. Afturhaldssöm kynjahlutverk og jaðarsetning á grundvelli kyns eru nú orðin sýnilegri aftur í takt við staðalímyndir sem ríktu fyrir hálfri öld síðan. Áreiti og ofbeldi er tíðara og orðræðan í garð kvenna og kvára hatursfyllra.  

Með þessu samstarfsverkefni vilja almenningsbókasöfn styrkja tengslin við einstaklinga, félagasamtök eða stofnanir sem vinna að jafnréttismálum með einum eða öðrum hætti í sínu nærsamfélagi og skapa saman áhugaverða dagskrá í samfélagsrýmum bókasafnanna. 

Hér á síðunni er hægt að fylgjast með framgangi verkefnisins og viðburðadagskrá bókasafnanna auk þess sem birt verður umfjöllun um viðburðina á hverjum stað ásamt myndum. 

Samstarfsaðilar:
Amtsbókasafnið Akureyri · Amtsbókasafnið Stykkishólmi · Borgarbókasafnið Grófinni · Borgarbókasafnið Kringlunni · Bókasafn Árborgar · Bókasafn Garðabæjar ·  Bókasafn Hafnarfjarðar · Bókasafn Héraðsbúa · Bókasafn Kópavogs · Bókasafn Mosfellsbæjar · Bókasafn Reykjaness  · Bókasafn Suðurnesjabæjar · Bókasafn Vesturbyggðar · Héraðsbókasafn A-Húnavatnssýslu · Héraðsbókasafn Borgarfjarðar · Héraðsbókasafn Rangárvallarsýslu · Kvenréttindafélag Íslands · Menningarmiðstöð Hornafjarðar · Safnahús Vestmannaeyja 

Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði. 
 

Nánari upplýsingar veitir: 

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar 
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is