Djöfladýrkun á miðöldum
Mynd úr handritinu Codex Gigas, frá 13. öld

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Tungumál
Íslenska
Fræðsla

Fræðakaffi | Djöfladýrkun á miðöldum

Mánudagur 7. apríl 2025

Grégory Cattaneo miðaldasagnfræðingur fjallar um ýmsar hliðar djöfladýrkunar á miðöldum, meðal annars trúarbrögð, villutrú, sögusagnir, hefðir og venjur, þjóðtrú og mótmæli kirkjunnar. 

Grégory segir frá djöflafræði á 5.-15. öld, hann ræðir trúarbrögð og venjur sem tengjast dýrkun djöflusins, þar á meðal blót og tákn. Hvernig eru miðaldasagnir um djöfulinn, samskipti hans við menn og hlutverk hans í evrópskri þjóðtrú?

Hvernig var skipan djöfulsins og tengdra vera háttað, hver voru einkenni þeirra og áhrif á daglegt líf fólks?

Hver var framsetning djöfulsins í miðaldalist, t.d. málverkum, höggmyndum og skáldverkum?

Grégory Cattaneo er franskur miðaldasagnfræðingur og rithöfundur, búsettur á Íslandi. Hann er með doktorsgráðu í sögu og hefur um nokkurra ára skeið tekið þátt í fræðslustarfi samhliða því að stunda rannsóknir sínar. Hann vann í átta ár sem stundakennari í sagnfræði og frönsku við Háskóla Íslands og hefur gegnt stöðu gestakennara við Sorbonne-háskóla og við École Pratique des Hautes Études í París þar sem hann kenndi sagnfræði og námskeið um íslenska menningu og Íslendingasögur. Undanfarin þrjú ár hefur hann kennt við Endurmenntun Háskóla Íslands með það að markmiði að deila rannsóknum sínum með fjölbreyttari hóp.

Frekari upplýsingar veita:

Grégory Cattaneo, miðaldasagnfræðingur
gregory.cattaneo@gmail.com, s. 865 4267

Sigríður Stephensen, sérfræðingur
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is, s. 411 6230