Hönnunarmars 2025 | Krílalaut

Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 12:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
0-2 ára
Tungumál
-
Börn

Hönnunarmars | Krílalautin með ÞYKJÓ

Sunnudagur 6. apríl 2025

Hönnunarteymið ÞYKJÓ og Borgarbókasafnið bjóða krílum á aldrinum 0-2 ára og forráðafólki þeirra að koma og upplifa Krílalautina, sérstakt svæði fyrir þau allra yngstu á barnahæðinni í framtíðarbókasafninu við Tryggvagötu. ÞYKJÓ sýnir frumgerðir sérhannaðar fyrir barnasvæðið, við leikum okkur í Krílalautinni og fáum að prófa ýmsar hugmyndir af hugmyndaborðinu.

Öll börn á aldrinum 0-2 ára ásamt forráðafólki eru velkomin á viðburðinn.

Viðburðurinn er ókeypis, engin skráning. 

Sjá heildardagskrá Borgarbókasafnsins á Hönnunarmars.

Sjá vefsíðu Hönnunarmars 2025.
 

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri nýsköpunar
gudrun.lilja.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | 411 6114