Bækur fyrir 5-13 ára

Vantar þig hugmyndir að bókum til að lesa?

Ef þú hefur gaman af spennusögum, íþróttabókum, vísindaskáldsögum, hrollvekjum eða ástarsögum - þá getum við barna- og unglingabókaverðirnir örugglega hjálpað! Við höfum nefninlega búið til allskonar bókalista, flokkaða eftir umfjöllunarefni, til að hjálpa ykkur að uppgötva fullt af frábærum bókum og höfundum.

Hundur að lesa

Skemmtilegar í sumar

Sumarlegar bækur, fullkomnar í sumarfríið!

bókaseríur

Byrjaðu hér!

Þessi bókalisti er tilvalinn fyrir lestrahesta vita ekkert betra en að sökkva sér ofan í góða sögu. 

Grín í barnabókum

Grín

Það er fátt betra en gott hláturskast! Bókum af þessu tagi ætlað að kitla hláturtaugarnar. 

Íþróttakrakkar að fagna

Íþróttir

Keppnisskap, þrautseigja, samstaða, liðsheild, tap og sigur! Íþóttir eru eins og lífið, allt getur gerst.

Kastali

Fantasíur

Í fantasíum getur allt gerst. Oft gerast þær í umhverfi sem er ekki til og atburðir sem geta alls ekki gerst, gerast. Og hvað gerist þá? 

strákur  á gægjum

Spennusögur

Í þessum flokki eiga glæpasögur heima en líka bækur sem eru það spennandi að það er ómögulegt að leggja þær frá sér.

Drama í barnabókum

Drama

Bækur í þessum flokki geta fjallað um dramatíska lífsreynslu og stundum erfiða. Þær geta fjallað um ástvinamissi, söknuð, eða breytingar sem varpa lífinu á hvolf. 

Stelpa og hjörtu

Kærleikur

Bækurnar hér að neðan eiga það sameiginlegt að fjalla allar á einhvern hátt um ástina, kærleikann og allan tilfinningaskalann sem fylgir því að vera skotinn í einhverjum.

draugar

Hrollvekjur

Langar þig að lesa eitthvað sem fá hárin til að rísa? Þessar hrollvekjur eru bara fyrir þá hugrökkustu… Þorir þú? 

Víkingastrákur

Fyrir langa, langa löngu

Fyrir langa, langa löngu. Þessar bækur fjalla um það sem gerðist í gamla, gamla, gamla daga. 

Spennusögur í skammdeginu

 

Spenna í skammdeginu

Hér eru nokkrar spennusögur sem gerast um kaldan, myrkan vetur. Fullkomin lesning í lok jóla og í byrjun nýs árs. 

Jólabækur fyrir 5-13 ára

Jólabækur

Þegar eftirvæntingin eftir jólunum stigmagnast og spenningurinn er orðinn gríðarlegur, þá er fátt betra en að gleyma sér aðeins í góðri jólabók.