Borgarbókasafnið er opið
Borgarbókasafnið er opið á ný eftir sex vikna lokun í samkomubanni. Við höfum raðað, hagrætt og umbreytt og erum spennt að sýna ykkur afraksturinn.
Við förum þó varlega af stað, pössum upp á tvo metrana, þrífum yfirborð og snertifleti reglulega, sem og yfirborð allra safngagna sem skilað er. Fjöldi í hverju rými verður takmarkaður við 50 manns.
Skiladagur allra bókasafnsgagna hefur verið framlengdur til 14. maí og eru engar dagsektir reiknaðar fram að þeim degi.
Við vekjum sérstaka athygli á eftirfarandi:
- Borgarbókasafnið Sólheimum verður áfram lokað vegna framkvæmda en opnar aftur innan skamms.
- Bókabíllinn Höfðingi verður ekki ræstur alveg strax, fylgist vel með á heimasíðunni.
- Á heimasíðunni er hægt að panta og taka frá bækur og annað efni og sækja beint í afgreiðslu eftir opnun. Hér finnur þú leiðbeiningar.
- Gildistími allra bókasafnsskírteina hefur verið framlengdur um 6 vikur.
Við hlökkum til að sjá ykkur!