Um þennan viðburð
Tími
13:15 - 14:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Tungumál
íslenska, enska
Tónlist
Tónleikar | Hádegistónar
Fimmtudagur 21. nóvember 2024
Á þessum tónleikum munu vinkonurnar Sigrún Erla Grétarsdóttir og Birna Kristín Ásbjörnsdóttir flytja vel valda jazzstandarda og dægurlög eins og Cheek to Cheek, My funny Valentine og Um þig.
Sigrún Erla er tónlistarkona með menntun í jazzsöng og rytmískri söng- og hljóðfærakennslu.
Birna Kristín er píanóleikari með menntun í klassískum og rytmískum píanóleik ásamt því að stunda nám við Listaháskóla Íslands.
Verið öll velkomin að njóta góðrar tónlistar í hádeginu á fimmtudegi og því ekki að mæta með prjónana?