einu sinni var, fókus

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Sýningar

Ljósmyndasýning | FÓKUS - Einu sinni var

Laugardagur 2. mars 2024 - Þriðjudagur 2. apríl 2024

Vorsýning Fókus - félags áhugaljósmyndara hverfist að þessu sinni um ferðalag um slóðir þar sem „mörkin á milli myndrænnar framsetningar og tímalausra minninga eru óljós“ eins og segir í sýningarskrá. „Myndirnar geyma fjölda sagna sem hver og ein kallar fram einstakt sjónarhorn á liðna tíð og sameiginlegan reynsluheim fólks.“

„Gamlar húsarústir og raddir fortíðar minna okkur á hversu vanmáttug við erum gagnvart tímanum sem æðir áfram“, segir ennfremur, „hver mynd endurspeglar ólíkan þátt mannkyns, en saman kalla þær fram vangaveltur um tengslin á milli fortíðar, nútíðar og framtíðar.“

39 félagar í Fókus sýna hér nýlegar ljósmyndir af ýmsum toga, svarthvítar myndir og litmyndir af fólki, náttúru, mannvirkjum, farartækjum og mörgu fleira sem rúmast innan þessa þema. Fókus hefur starfað í 25 ár og hefur staðið fyrir reglulegum viðburðum fyrir áhugafólk um ljósmyndun. Á síðasta starfsári voru haldnir rúmlega 30 viðburðir af ýmsu tagi; fyrirlestrar, vinnufundir, dagsferðir, kvöldrölt og lengri ferðir, þar sem myndavélarnar voru að sjálfsögðu með í för.

Sýningarstjórarnir í ár, Yael BC og Lea Amiel, eru ljósmyndarar og kvikmyndagerðarkonur og eru báðar búsettar á Íslandi.

Sýninguna má skoða á opnunartíma safnsins.

Instagram síða félagsins

Facebook hópur félagsins

Nánari upplýsingar veita:
Ósk Ebenesersdóttir, stjórnarmeðlimur í Fókus
osk.ebenesersdottir@gmail.com | 892 1407

Sigríður Stephensen, sérfræðingur
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6230