Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Sýningar

Leiðsögn og leikur með grafík | Sýningin Samspil

Laugardagur 21. janúar 2023

Vinkonurnar og myndlistarkonurnar Marilyn Herdís Mellk og Þórdís Elín Jóelsdóttir opnuðu í desember sýninguna Samspil. Þær verða með leiðsögn um sýninguna og sýna auk þess bókverk sem þær unnu saman. Gestum gefst kostur á að spreyta sig við grafíkina, bera prentlit á dúkristur, sem síðan eru þrykktar í agnarlítilli pressu, hvert þrykk er síðan áritað og númerað af þeim stöllum og gestum til eignar.

Viðburður á Facebook

Sjá hér nánari upplýsingar um sýninguna Samspil sem stendur til 25. janúar n.k.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Stephensen, sérfræðingur
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6230