![Innkaupapokinn Innkaupapokinn](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/thumbnail_tix.is_1600x5002x.png?itok=4CULd1Gy)
Um þennan viðburð
Leikhúskaffi | Innkaupapokinn
Leiksýningin Innkaupapokinn verður frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins þann 28.febrúar næstkomandi. Sýningin er vefur sem leikhópurinn Kriðpleir spinnur umhverfis veröld Elísabetar Jökulsdóttur og leikrit hennar „Mundu töfrana“.
Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem Bjarni Jónsson leikstjóri og Friðgeir Einarsson leikari segja frá sýningunni. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Litla svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna.
Um sýninguna:
Leiksýningin Innkaupapokinn er vefur sem leikhópurinn Kriðpleir spinnur umhverfis veröld Elísabetar Jökulsdóttur og leikrit hennar „Mundu töfrana“. Í verki Elísabetar, sem hún skrifaði fyrst árið 1992, leita Ella og Trúðurinn bróðir hennar að „Barninu“ til þess að færa því tár svo það geti syrgt pabba sinn og haldið áfram eigin tilveru. Handritið hefur verið hálfgert olnbogabarn í íslensku leikhúsi í rúmlega 30 ár og aldrei ratað á svið þrátt fyrir þrotlausar
tilraunir höfundar og stöðug endurskrif. En í kjölfar þess að Ragnar Ísleifur Bragason, meðlimur í leikhópnum Kriðpleir frétti af þrautargöngu Elísabetar hefur ný von kviknað því Ragnar vill óður og uppvægur koma Elísabetu,
frænku sinni, til bjargar með hjálp félaga sinna úr leikhópnum. Sumir gætu sagt að þetta væri eins og að fara úr öskunni í eldinn. Það er að minnsta kosti ekki vandræðalaust að lífga við gamlan galdur …
Leikhópurinn Kriðpleir er einn af virkari hópum íslensku sviðslistasenunnar. Hópurinn hefur samið um tug verka fyrir leiksvið og útvarp, sýnt þau innanlands sem utan og hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímunnar.
Sýningin er styrkt af Sviðslistasjóði og Listamannalaunum.
Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum. Öll eru hjartanlega velkomin!
Viðburðurinn á Facebook
Leikritið á vef Borgarleikhússins
Nánari upplýsingar veita:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204
Emelía Antonsdóttir Crivello
emelia@borgarleikhus.is | 568 5500