G. Pétur Matthíasson Heimilisskipti Húsaskipti Gerðuberg Borgarbókasafnið
G. Pétur Matthíasson talar um heimilisskipti í Gerðubergi

Um þennan viðburð

Tími
20:00 - 21:30
Verð
Frítt
Fræðsla
Kaffistundir
Spjall og umræður

Ferðakaffi I Heimilaskipti um heimsálfurnar sjö

Miðvikudagur 4. mars 2020

Í Borgarbókasafninu Gerðubergi mun G. Pétur Matthíasson fjalla um heimilaskipti sem hann hefur átt í, Danmörku, París, Berlín, Bordeaux og í Argentínu. Ræði kostina við þessa tegund ferðalaga, hvað ber að hafa í huga og fleira. Einnig mun hann segja frá reynslu sinni af þessu í gegnum árin. Hvernig þetta fyrirkomulag gefur manni aðra sýn á staðinn sem heimsóttur er, sýn sem maður fær ekki á hóteli. Kostnaðinn og sparnaðinn, samskipti við hinn aðilann, fyrir, á meðan og ekki síður á eftir.

G. Pétur Matthíasson er forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar og hef verið í því starfi síðan 2007, þar áður var hann fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Hann er menntaður blaðamaður og bókmenntafræðingur auk þess sem hann stundaði diplómanám í Evrópufræðum og Alþjóða samskiptum.
Viðburðurinn á facebook 
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis

Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjjavik.is
S: 4116114