Vatnslitun

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Föndur

Vatnslitun með Jitku

Fimmtudagur 16. nóvember 2023

Á viðburðinum lærir þú grunntækni í vatnslitun og færð aðstoð við að gera þitt eigið málverk. Það skiptir ekki máli hvort þú ert byrjandi eða lengra komin, Jitka Hermankova verður á staðnum til að leiðbeina og hjálpa.  

Það verða vatnslitir og blöð á staðnum, en fólk má endilega koma með sínar eigin vörur ef það vill. Málum saman og slökum á! 
Jitka er búsett á Akureyri og kemur sérstaklega til Reykjavíkur til að halda vinnustofuna í umhverfi bókasafnsins í Grófarhúsi.

Öll velkomin, ekkert þátttökugjald 

Viðburður á Facebook

Viðburðurinn er hluti verkefnisins Vettvangur samsköpunar og er styrkt af Bókasafnasjóði og Byggðarannsóknasjóði.   

Frekari upplýsingar 
Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka 
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is