Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
íslenska
Föndur

Tilbúningur | Servíettubrot

Fimmtudagur 8. maí 2025

Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?

Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.

Fallega brotnar servíettur eru borðprýði og í þessum tilbúningi ætlum við að æfa okkur í nokkrum einföldum servíettubrotum.

Sæunn Þorsteinsdóttir listakona leiðbeinir.

Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng  fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. 

Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg. 


Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250

 

 

Merki