Hallur Örn
Hallur Örn

Um þennan viðburð

Tími
14:30 - 15:15
Verð
Frítt
Börn

Útskriftarhátíð Listkennsludeildar LHÍ | Hreyfimyndagerð frá 19. öld

Laugardagur 14. maí 2022

Fyrir börn á grunnskólaaldri

Meistaraneminn og kvikmyndagerðarmaðurinn Hallur Örn Árnason leiðir smiðju. Nánari upplýsingar um lokaverkefni Halls, Eru kvikmyndir listgrein eða tungumál? – Kennsluefni i kvikmyndagerð og kvikmyndalæsi, má finna hér.

Í smiðjunni fræðumst við um fyrstu gerðir hreyfimynda og spreytum okkur á að búa til okkar eigin "phenikistoscope" sem er hreyfimyndaleikfang sem fundið var upp snemma á 19.öld.

Hallur Örn Árnason.

 

Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands og þar kynna verðandi kennarar lokaverkefni sín með fjölbreyttum hætti. Listkennsludeild Listaháskóla Íslands stendur fyrir útskriftarviðburði dagana 13. og 14. maí.

Dagskrá er opin öllum og fer fram í Borgarbókasafni / Menningarhúsi Gerðubergi.

Börn ásamt aðstandendum eru sérstaklega boðin velkomin á fjölskylduvænar listasmiðjur nemenda.

Dagskrá og nánari upplýsingar um lokaverkefni nemenda má finna hér.