
Um þennan viðburð
Tónfundur Skólahljómsveitar Austurbæjar
Miðvikudaginn 12. október kl. 16:30 halda meðlimir Skólahljómsveitar Austurbæjar tónfund í Borgarbókasafninu Kringlunni.
Skólahljómsveit Austurbæjar er starfandi tónlistarskóli í Austurbæ Reykjavíkur sem sérhæfir sig í kennslu á blásturs- og ásláttarhljóðfæri og hljómsveitarspilamennsku. Nemendur sveitarinnar koma fram með hljómsveit á hljómsveitartónleikum og stærri viðburðum. Einnig fá þeir tækifæri að koma fram einir eða í smærri hópum á tónfundum. Hljómsveitin leggur áherslu á að vera sýnileg í hverfum Austurbæjarins og fara með tónfundina þangað sem fólkið er.
Við viljum bjóða alla velkomna og njóta tónlistarinnar með okkur.
Nánari upplýsingar:
Rósa Guðrún Sveinsdóttir
rosa.gudrun.sveinsdottir@rvkskolar.is
s: 8643232
Guðríður Sigurbjörnsdóttir
gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is
s: 6912946