Listsmiðja með Lindu Ólafsdóttur

Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Börn

FULLBÓKAÐ Sumarsmiðja | Saga sem lifnar við

Mánudagur 12. júní 2023 - Föstudagur 16. júní 2023

Hvernig skapar þú ógleymanlegar söguhetjur og undraheima? 

Linda Ólafsdóttir myndhöfundur og barnabókahöfundur leiðbeinir börnum og ungmennum um hvernig þau færa líf í sögurnar sínar. Þátttakendur læra að teikna sögupersónur og skapa umhverfi þeirra og raða saman í bók sem þau útbúa annað hvort eftir sinni eigin sögu eða klassískum ævintýrum.

Linda Ólafsdóttir hefur myndlýst fjölda bóka fyrir börn og fjölskyldur. Hún er með BFA gráðu í myndlist, MFA gráðu í myndlýsingum (e. illustration), kennsluréttindi og kennir við Myndlistaskólann í Reykjavík ásamt því að teikna og skrifa frá vinnustofu sinni í Laugardalnum. Linda er höfundur bókarinnar Leika? og er meðal annarra bóka myndhöfundur að Reykjavík barnanna, Íslandsbók barnanna, Draumaþjófinum og Blíðfinni.

Smiðjan verður í fimm skipti, 12.-16. júní, og stendur yfir í tvo tíma hverju sinni.

Skráning hefst laugardaginn 29. apríl  á sumar.vala.is.

Nánari upplýsingar veitir:
Natalie Colceriu, sérfræðingur
nataliejc@reykjavik.is | 411-6181