Um þennan viðburð
Roblox smiðja
Kennarar frá Skema mæta á bókasafnið og kenna okkur grunninn í Roblox Studio, forritunarumhverfi Roblox. Við lærum að búa til einfalda leiki og snerta á forritun með Lua forritunartungumálinu. Markmið smiðjunnar er að veita þátttakendum þekkingu og verkfæri til þess að halda áfram heima.
Skráning er nauðsynleg. Skráningarformið er neðst á síðunni.
Skema sérhæfir sig í kennslu og rannsóknum með sálfræði, kennslufræði og tölvunarfræði að leiðarljósi. Skema stendur fyrir fjölbreyttum tækninámskeiðum og vinnur auk þess að því markmiði að kennsla í forritun verði í boði í grunn- og framhaldsskólum landsins. Undirstöðuatriði aðferðafræðinnar byggja á jákvæðni, myndrænni framsetningu og notkun á þrívíðum forritunarumhverfum til að stíga fyrstu skrefin inn í heim tækninnar.
Nánari upplýsingar veitir.
Brynhildur Lea Ragnarsdóttir
Brynhildur.Lea.Ragnarsdottir@reykjavik.is