Harry Potter klúbbur Borgarbókasafnið Kringlan
Harry Potter klúbbur fyrir 9-12 ára í Kringlunni alla miðvikudaga

Um þennan viðburð

Tími
14:30 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Klúbbur I Harry Potter fyrir 9-12 ára I Kringlan

Miðvikudagur 9. febrúar 2022

ATHUGIÐ að klúbburinn byrjar 9. febrúar og skráning er nauðsynleg.

Aðdáendur Harry Potter koma saman til að spila, spjalla, teikna, föndra, horfa á Harry Potter myndir eða hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera.
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 9-12 ára.
Einnig er boðið upp á skemmtilegar smiðjur, s.s. Quidditch kennslu, tálgun töfrasprotagerð, búningagerð o.fl.
Klúbburinn er annan hvern miðvikdag kl. 14.30-16.00 í Borgarbókasafninu Kringlunni og aðeins fyrir meðlimi. 
ATHUGIÐ að einnig er klúbbur í Borgarbókasafninu Gerðubergi fyrir 13-16 ára á fimmtudögum kl. 16.30-18.00.

Leiðbeinendurnir eru mestu Harry Potter aðdáendur safnsins og tökum við vel á móti öllum krökkum.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald og opnað verður fyrir skráningar hér á síðunni innan tíðar.

Nánari upplýsingar:
Rut Ragnarsdóttir Deildarbókavörður
rut.ragnarsdottir@reykjavik.is