
Um þennan viðburð
Lestrargengið í 112 | Miðnæturrósin
Í september lesum við Miðnæturrósina, rómantíska sögulega skáldsögu frá 2013 eftir Lucinda Riley en hún er einkum þekkt fyrir bókaflokkinn um systurnar sjö. Um er að ræða marglaga sögu fjögurra kynslóða þar sem sögusviðið er Indland og Bretland.
Lestrargengið í 112 kemur saman einu sinni í mánuði til að spjalla og spekúlera í bókmenntum af ýmsum toga eftir jafnt íslenska sem erlenda höfunda. Þetta misserið ætlum við þó að eingöngu að lesa þýdd skáldverk eftir írska samtímarithöfunda. Markmiðið er að skapa vettvang til að ræða og skiptast á skoðunum um bókmenntir og eiga saman notalega stund á bókasafninu.
Við hittumst á Borgarbókasafninu Spönginni og komum okkur vel fyrir í hornsófanum á 2. hæðinni.
Leslistinn:
26. ágúst
Seint og um síðir - sögur af konum og körlum eftir Claire Keegan
30. september
Miðnæturrósin eftir Lucinda Riley
28. október
Brúðarmyndin eftir Maggie O'Farrell
4. nóvember
Strákurinn í röndóttu náttfötunum eftir John Boyne
9. desember
Millileikur eftir Sally Rooney
Sjá yfirlit yfir alla leshringi Borgarbókasafnsins
Skráning og nánari upplýsingar:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115