Við ræðum um bókina Strákurinn í röndóttu náttfötunum

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir

Lestrargengið í 112 | Strákurinn í röndóttu náttfötunum

Þriðjudagur 25. nóvember 2025

 Í nóvember ræðum við um bókina Strákurinn í röndóttu náttfötunum eftir John Boyne. Sögusviðið er Þýskaland í síðari heimsstyrjöldinni og sagan er sögð frá sjónarhorni níu ára drengs sem heitir Bruno. Faðir hans er háttsettur herforingi í stjórn Hitlers og fjölskyldan flyst búferlum frá Berlín til Auschwitz þar sem hann starfar. Þar kynnist Bruno dreng í röndóttum náttfötum en samband þeirra á eftir að draga dilk á eftir sér með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Bókin kom út 2066 og samnefnd kvikmynd byggð á sögunni kom út 2008.

Lestrargengið í 112 kemur saman einu sinni í mánuði til að spjalla og spekúlera í bókmenntum af ýmsum toga eftir jafnt íslenska sem erlenda höfunda. Þetta misserið ætlum við þó að eingöngu að lesa þýdd skáldverk eftir írska samtímarithöfunda. Markmiðið er að skapa vettvang til að ræða og skiptast á skoðunum um bókmenntir og eiga saman notalega stund á bókasafninu. Við hittumst á Borgarbókasafninu Spönginni og komum okkur vel fyrir í hornsófanum á 2. hæðinni.

Leslistinn:

26. ágúst
Seint og um síðir - sögur af konum og körlum eftir Claire Keegan

30. september
Miðnæturrósin eftir Lucinda Riley

28. október
Brúðarmyndin eftir Maggie O'Farrell

25. nóvember
Strákurinn í röndóttu náttfötunum eftir John Boyne

9. desember
Millileikur eftir Sally Rooney
 

Leshringurinn á Facebook

Sjá yfirlit yfir alla leshringi Borgarbókasafnsins
 

Skráning og nánari upplýsingar:

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115

Bækur og annað efni