
Fjölskyldan á bænum Veturhús á Eskifjarðarheiði vann einstaka hetjudáð aðfaranótt 21.janúar 1942. Breskur herflokkur lenti í miklu óveðri og hermennirnir hefðu trúlega flestir farist, ef fjölskyldan hefði ekki komið þeim til bjargar. Í bókinni er fjallað um þessa næst stærstu björgun Íslandssögunnar sem fáir vissu af. Bókinni fylgir veglegur dvd diskur með heimildarmyndinni Veturhús, ásamt miklu af aukaefni frá gerð myndarinnar. (Heimild: Bókatíðindi)