
Útlendingurinn er ein af perlum heimsbókmenntanna og kemur nú öðru sinni fyrir almenningssjónir hér á landi í nýrri þýðingu Ásdísar Magnúsdóttur, sem einnig ritar eftirmála um ævi höfundarins og verk hans. Þetta fræga skáldverk kom fyrst út í Frakklandi árið 1942. Þar segir frá skrifstofumanninum Meursault sem fær sér kaffi og sígarettu við kistu látinnar móður sinnar vegna þess að honum þykir kaffi gott og langar að reykja. Við jarðarförina er hann þjakaður af hita og brennandi sól en finnur ekki til sorgar. Þegar hann verður svo manni að bana í óbærilegu sólskini er hann dæmdur fyrir að hafa jarðað móður sína með hjarta glæpamanns. Í bókarlok er viðauki með hugleiðingum og æfingum fyrir nemendur. (Heimild: Bókatíðindi)