Óttar Guðmundsson: Kleppur í 100 ár
  • Bók

Kleppur í 100 ár

Meðhöfundar / þýðendur / útgefendur
Halldóra ÓlafsdóttirGuðrún GuðnadóttirPáll BieringRagnheiður Gyða Jónsdóttir
Fyrsti sjúklingurinn lagðist inn á Kleppsspítala fyrir réttum 100 árum. Æ síðan hefur Kleppur verið óaðskiljanlegur hluti íslensks veruleika. Kleppsheitið var notað í ýmsu samhengi, stundum miður skemmtilegu, en húsið við Sundin blá var líka uppspretta fjölmargra sagna og brandara. Það var ávallt umlukið dularfullum ljóma. Óttar Guðmundsson læknir segir sögu Klepps frá sjónarhóli sjúklinga sem stöldruðu við eða urðu innlyksa á stofnuninni, stjórnendum, starfsfólki og aðstandendum þeirra sem þarna lágu. Saga Klepps er öðrum þræði saga íslensks samfélags og geðmeðferðar í heila öld. (Heimild: Bókatíðindi)
Gefa einkunn