Sérfræðingur við Borgarbókasafnið Kringlunni | Laus staða
Borgarbókasafnið í Kringlunni auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu háskólamenntaðs starfsmanns. Leitað er að starfsmanni sem býr yfir frumkvæði, mikilli samskiptahæfni og hefur tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð til að starfa að margvíslegum verkefnum og þjónustu á safninu ásamt því að hafa umsjón með barnastarfi og barnadeild Borgarbókasafnsins í Kringlunni.
Um tímabundið starf frá 1. september 2024 er að ræða.
Auk framangreinds krefst starfið metnaðar, skipulagshæfni og sveigjanleika.
Helstu verkefni:
- Umsjón með safnkynningu, sögustundum, viðburðum og fræðsludagskrá fyrir börn og unglinga
- Umsjón með uppbyggingu safnkosts barna- og ungmennadeildar í samræmi við stefnu safnsins
- Samskipti við fagaðila, félagasamtök, skóla, leikskóla og fl.
- Kynning á safnkosti og vinna við útstillingar
- Afgreiðsla og upplýsingaþjónusta við notendur