Laust starf | Verkefnastjóri grafískrar hönnunar og samfélagsmiðla

Viltu taka þátt í að miðla öllu því sem er í gangi á Borgarbókasafninu?
 

 

Helstu verkefni og ábyrgð 

Verkefnastjóri sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa að grafískri hönnun, ritstjórn og gerð efnis fyrir samfélagsmiðla. Hann vinnur að birtingaráætlun, textagerð, vinnslu á grafísku efni og tekur ljósmyndir fyrir miðla safnsins í nánu samstarfi við kynningarstjóra og hönnunarstjóra.  

Verkefnastjórinn heyrir undir deild miðlunar og nýsköpunar og vinnur þvert á allar starfsstöðvar Borgarbókasafnsins. Hann á sæti í ritstjórn kynningarmála sem vinnur saman að mótun og þróun verkefna sem snúa að kynningu á þjónustu, viðburðadagskrá og ýmsum sérverkefnum safnsins.   

Fríðindi í starfi 

  • 36 stunda vinnuvika 
  • Sundkort 
  • Menningarkort 
  • Heilsustyrkur 
  • Samgöngusamningur 

 
Hæfniskröfur 

Háskólapróf á framhaldsstigi (MA/MS) og að lágmarki 2ja ára reynsla í verkefnastjórnun kynningarmála og þá sérstaklega á sviði grafískrar hönnunar og gerð efnis fyrir samfélagsmiðla; Háskólapróf á fyrsta stigi (BA/BS) auk a.m.k. 5 ára starfsreynslu á viðkomandi sérfræðisviði. 
 

  • Metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi. 
  • Framúrskarandi þekking á kynningarmálum, einkum er varðar grafíska hönnun og samfélagsmiðla. 
  • Menntun og reynsla af grafískri hönnun og myndvinnslu í forritum á borð við InDesign, Illustrator, Photoshop, Premiere og Canva. 
  • Hæfni til að skrifa góða texta fyrir samfélagsmiðla. 
  • Reynsla af skipulagningu, stýringu og framkvæmd kynningar- og markaðstengdra verkefna. 
  • Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum. 
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki. 
  • Gott vald á upplýsingatækni og -miðlun efnis á samfélagsmiðlum. 
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og mikil hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, kunnátta í þriðja tungumáli kostur. 

 

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaður endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. 

Um er að ræða tímabundna ráðningu til 31. maí 2026 í 75% starfshlutfall.  

Launakjör eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.  Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 
 

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar hjá Borgarbókasafninu
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115

 

Flokkur
Merki
UppfærtFimmtudagur, 26. júní, 2025 11:56