Hver er að telja?

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Tungumál
Íslenska
Spjall og umræður

Hver er að telja? | Ungmenni sem kunna að telja

Miðvikudagur 4. desember 2024

Hagstofa Íslands kynnir verkefnið Greindu betur og ræðir hvernig efla má upplýsingalæsi ungmenna.

Gagna- og upplýsingalæsi er sífellt að verða mikilvægari færni samfara aukinni upplýsingaóreiðu og falsfréttum á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum almennt. Ljóst er að til þess að stemma stigu við þessum áskorunum þurfa þær stofnanir sem hafa það hlutverk þjálfa skilning á áreiðanlegum upplýsingum um hagfélagsleg málefni að taka höndum saman.

Viðburður á Facebook

Öll velkomin og þátttaka ókeypis.

Hver er að telja? er viðburðaröð Hagstofu Íslands og Borgarbókasafnsins um gagnalæsi og miðlunarleiðir í anda Greindu betur.

Frekari upplýsingar veitir:
Arndís Vilhjálmsdóttir
greindubetur@hagstofa.is