Tilnefningar | Sögur - Bókaverðlaun barnanna
Árlega tilnefna börn þær bækur sem þeim þykja skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar að hvaða ástæðu sem er. Börn af öllu landinu kusu á skóla- og almenningsbókasöfnum og hlutu alls 122 bækur kosningu. Þessi mikla dreifing atkvæða sýnir að börnin vilja breiða og fjölbreytta flóru barnabóka og að hver bók á sinn lesanda. Þann 14. apríl var tilkynnt við hátíðlega athöfn á Borgarbókasafninu hvaða bækur stóðu upp úr, fimm frumsamdar og fimm þýddar barnabækur.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar til Bókaverðlaun barnanna 2024:
Í flokki íslenskra barnabóka
Alexander Daníel Hermann Dawidsson : bannað að drepa
Höfundur: Gunnar Helgason
Myndir: Rán Flygenring
Bella gella krossari
Höfundur: Gunnar Helgason
Myndir: Rán Flygenring
Lára missir tönn
Höfundur: Birgitta Haukdal
Myndir: Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
Orri óstöðvandi - jólin eru að koma
Höfundur: Bjarni Fritzson
Myndir: Þorvaldur Sævar Gunnarsson
Salka : hrekkjavakan
Höfundur: Bjarni Fritzson
Myndir: Þorvaldur Sævar Gunnarsson
Í flokki þýddra barnabóka
Bluey : góða nótt leðurblaka
Höfundur: Rebecca Gerlings
Þýðandi: Andri Karel Ásgeirsson
Dagbók Kidda klaufa : rokkarinn reddar öllu
Höfundur: Jeff Kinney
Þýðandi: Helgi Jónsson
Hundmann : flóadróttinssaga
Höfundur: Dav Pilkey
Þýðandi: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Mbappé er frábær
Höfundur: Simon Mugford
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson
Myndir: Dan Green
Messi er frábær
Höfundur: Simon Mugford
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson
Myndir: Dan Green
Þessar tíu barnabækur munu keppa svo áfram í kosningu Sagna – verðlaunahátíð barnanna. Kosning Sagna á vef RÚV var opnuð við lok tilnefningarathafarinnar og stendur kosningin til 12. maí.
Tilkynnt verður um úrslit í hátíðardagskrá, Sögur – verðlaunahátíð barnanna sem verður sjónvarpað á RÚV laugardaginn 3. júní.