Smásmiðja - Stafræn hreinsun

Um þennan viðburð

Tími
16:45 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Skapandi tækni
Spjall og umræður

Smásmiðja | Stafræn hreinsun

Þriðjudagur 6. febrúar 2024

Hefurðu prófað að endurræsa þig? 

  • Byrjum upp á nýtt með stafrænni hreinsun 
  • Dýpri samtöl: Að gægjast laumulega á símann verður liðin tíð.
  • Skemmtum okkur í raunheimum: Njótum lífsins án þess að skrásetja hvert augnablik.
  • Verum upplýst, en ekki buguð: Fylgjumst með fréttum á kvíðalausan hátt.
  • Segjum bless við FOMO: Við erum ekki að missa af neinu!

Fyrir hverja er þessi vinnustofa? 

Þau sem vilja:

  • Nota smáforrit án þess að þau taki yfir lífið.
  • Nota tækni í samræmi við eigin gildi og markmið.
  • Finna áhrifaríkari lausnir en að slökkva á tilkynningum eða vera með símalaust svefnherbergi.

Hvernig virkar stafræn hreinsun? 

  • Tökum hlé í 30 daga: Losum okkur við þau forrit og veitur sem við þurfum ekki lífsnauðsynlega á að halda.
  • Njótum þess að vera í núinu.
  • Eftir 30 daga er hægt að opna aftur fyrir það sem samræmist nýjum og skýrari gildum.

Gerum áhrifaríka stafræna hreinsun án þess að það bitni á vinnu eða einkalífi. Við sýnum ykkur skref fyrir skref hvernig er best að bera sig að á Android eða iPhone.

 

  • Hvað á ég að koma með? Snjallsíma eða spjaldtölvu (valfrjálst).

 

Nánari upplýsingar veitir:

Karl James Pestka, verkefnastjóri
karl.james.pestka@reykjavik.is