Um þennan viðburð
Fantasíuklúbbur
Í klúbbnum ætlum við að eiga notalega stund og spjalla um allt sem viðkemur fantasíum, svo sem bókum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Klúbburinn er fyrir alla fantasíuaðdáendur 14-99 ára
Klúbburinn er ætlaður þeim sem eru nýlega farin að hafa áhuga á fantasíum og þeim sem eru lengri komnir í fantasíuheiminum. Aðalatriðið er að hitta önnur sem hafa brennandi áhuga á öllu sem tengist fantasíum.
Á fyrsta hittingnum ætlum við að ræða hvað við viljum taka fyrir í klúbbnum.
Öll velkomin í þennan glænýja fantasíuklúbb á safninu!
Við hittumst á Borgarbókasafninu Grófinni, 5. hæð, tvisvar í mánuði á laugardögum kl. 14:00-15:30
Dagsetningar: 20. janúar, 3. febrúar, 17. febrúar, 2. mars og 16. mars
Nánari upplýsingarr veitir:
Sigurrós Sóley Jónsdóttir | bókavörður
sigurros.soley.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6100