Tvær myndir, spælst saman í eina. Vinstra megin situr maður og spilar á söngskálar. Hægra megin liggur kona í floti í sundlaug.

Um þennan viðburð

Tími
19:00 - 21:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Kaffistundir

Kyrrðarkvöld | Flot, hóphljóðbað og slökun

Föstudagur 24. nóvember 2023

Þráir þú frið og ró? 

Komdu þá til okkar á Kyrrðarkvöld. 

Ljósin verða dempuð á safninu og róleg tónlist fær að óma. 

Í samstarfi við Dalslaug og Flothettu verður boðið upp á flot í innilauginni. Í floti upplifa þátttakendur heilandi stund saman í tímaleysi umlukin vatni. Djúp slökun og friðsæld í líkama, huga og sál. 

Á meðan á flotinu stendur verður einnig hægt að fara í leidda slökun í salnum fyrir þau sem það kjósa.  

Eftir flotið og slökunina verður boðið upp á hóphljóðbað í salnum með náttúruþerapistanum Jacek Szeloch. Í hóphljóðbaðinu notast Jacek við nepalska hljóðheilunartækni sem gengur út á að spila á söngskálar sem gefa frá sér titring. Hljóðheilunin kemur líkamanum í djúpt og heilandi slökunarástand.  

Ekki þarf að skrá sig, bara mæta á staðinn og njóta. 

  
Dagskrá: 

kl. 19:00             Flot í Dalslaug, mætið tímanlega, 20 pláss í boði, flotbúnaður afhentur í afgreiðslu. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

kl. 19:00             Slökun í sal, dýnur á staðnum 

kl. 20:30             Hóphljóðbað í sal, dýnur á staðnum 

  

Viðburður á Facebook 

Vefsíða Flothettu. 

Vefsíða Jaceks, Wellsprings. 

  

Nánari upplýsingar veitir: 
Stella Sif Jónsdóttir | Viðburðir 
stella.sif.jonsdottir@reykjavik.is