Sumarsmiðja | 13-16 ára | Bókasafnið á filmu
Komdu í smiðju með Lukas Gregor Bury og skoðaðu bókasafnið frá nýju sjónarhorni, í gegnum linsuna á gamaldags filmumyndavél. Í smiðjunni verður fræðsla um hvernig filmumyndavélar virka og farið yfir helstu stillingar á myndavélinni. Við horfum í kringum okkur, horfum í gegnum linsuna, tökum myndir, skoðum myndir, spáum og spekúlerum.
Smiðja þar sem ímyndunarafl og sköpunargáfa fá að njóta sín.
Smiðjan er á íslensku, ensku og pólsku og er kennd dagana 26.-30.júní á milli 12:00-14:00.
Lukas Gregor Bury er myndlistarmaður og er með MA-gráðu frá Listaháskóla Íslands.
Gott er ef þátttakendur geta komið með myndavél, ef það er ekki hægt útvegar bókasafnið myndavél.
Skráning er hafin á sumar.vala.is
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6255