Tilnefningar | Sögur - Bókaverðlaun barnanna
Árlega tilnefna börn þær bækur sem þeim þykja skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar að hvaða ástæðu sem er. Börn af öllu landinu kusu á skóla- og almenningsbókasöfnum og hlutu alls 124 bækur kosningu. Þessi mikla dreifing atkvæða sýnir að börnin vilja breiða og fjölbreytta flóru barnabóka og að hver bók á sinn lesanda. Þann 16. apríl var tilkynnt við hátíðlega athöfn á Borgarbókasafninu hvaða bækur stóðu upp úr, fimm frumsamdar og fimm þýddar barnabækur.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar til Bókaverðlaun barnanna 2023:
Íslenskar barnabækur
- Alexander Daníel Hermann Dawidsson - bannað að ljúga, Gunnar Helgason, myndir: Rán Flygenring
- Hanni granni dansari, Gunnar Helgason, myndir: Rán Flygenring
- Orri óstöðvandi : draumur Möggu Messi, Bjarni Fritzson, myndir: Þorvaldur Sævar Gunnarsson
- Salka - tímaflakkið, Bjarni Fritzson, myndir: Þorvaldur Sævar Gunnarsson
- Skólaslit, Ævar Þór Benediktsson, myndir: Ari H.G. Yates
Þýddar barnabækur
- Dagbók Kidda klaufa - meistarinn, Jeff Kinney. Þýðandi: Helgi Jónsson.
- Ekki opna þessa bók þú munt sjá eftir því, Andy Lee, myndir: Heath McKenzie. Þýðandi: Huginn Þór Grétarsson.
- Fótboltastjörnur - Salah er frábær, Simon Mugford. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
- Handbók fyrir ofurhetjur - Sjöundi hluti, Endurheimt, Elias og Agnes Våhlund. Þýðandi: Ingunn Snædal.
- Hundmann og kattmann, Dav Pilkey. Þýðandi: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson.
Þessar tíu barnabækur munu keppa svo áfram í kosningu Sagna – verðlaunahátíð barnanna á vef KrakkaRÚV. Kosningarvefur Sagna var opnaður við lok tilnefningarathafarinnar og stendur kosningin til 30. apríl.
Tilkynnt verður um úrslit í hátíðardagskrá, Sögur – verðlaunahátíð barnanna sem verður sjónvarpað á RÚV laugardaginn 3. júní.