Kváradagurinn | Kvára- og kynsegin bækur
Kváradagurinn var haldinn hátíðlegur í annað sinn þriðjudaginn 21. mars, á fyrsta degi einmánaðar. Kváradagurinn er í anda bóndadagsins sem landinn fagnar á fyrsta degi þorra ár hvert og konudagsins á fyrsta degi góu.
Orðið kvár er yfir fullorðinn kynsegin einstakling sem samsvarar orðunum karl og kona: hann er maður - hún er kona - hán er kvár
Á sama hátt er orðið stálp kynhlutlaust orð yfir kynsegin barn/ungmenni.
Hann er strákur - hún er stelpa - hán er stálp.
Orðin kvár og stálp beygjast með eftirfarandi hætti.
nf: kvár nf: kvár
þf: kvár þf: kvár
þgf: kvári þgf: kvárum
ef: kvárs ef: kvára
nf: stálp nf: stálp
þf: stálp þf: stálp
þgf: stálpi þgf: stálpum
ef: stálps ef: stálpa
Hér fyrir neðan má sjá dæmi um kvára -og kynseginbækur sem finna má á bókasafninu og tilvalið er fyrir unga sem aldna að lesa sér til ánægju og fróðleiks.