
Um þennan viðburð
Tími
13:00 - 15:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fullorðnir
Liðnir viðburðir
Hannyrðastund í Úlfarsárdal
Þriðjudagur 11. apríl 2023
Ert þú algjör prjónasnillingur, byrjandi í hekli eða lengra komin í krossaumi? Eða kannski bara í einhverju allt öðru?
Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal býður upp á notalegan samastað í Smiðjunni til þess að hittast með handavinnuna, fá sér kaffi og spjalla um daginn og veginn.
Á safninu er úrval af bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim.
Hannyrðastundirnar verða alla þriðjudaga milli kl. 13-15.
Engin skráning - Öll velkomin!
Nánari upplýsingar:
ulfarsa@borgarbokasafn.is