
Um þennan viðburð
Leikhúskaffi | Macbeth
Andrea Elín Vilhjálmsdóttir dramatúrg segir gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á Macbeth eftir William Shakespeare. Í kjölfarið verður farið yfir í Borgarleikhúsið þar sem gestir fá stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Í lokin býðst gestum 10% afsláttur af miðum á sýninguna.
Borgarbókasafnið Kringlunni og Borgarleikhúsið hafa í nokkur ár boðið upp á leikhúskaffi þar sem leiksýningar eru kynntar fyrir áhugasömum stuttu fyrir frumsýningu.
Saga hins blóði drifna, skoska konungs Macbeths var fyrst sett á svið fyrir meira en fjögur hundruð árum en galdurinn við bestu verk Williams Shakespeare er að viðfangsefnið er eilíft og talar sífellt inn í samtímann. Leikstjórinn, hin litháenska Uršulė Bartoševičiūtė er rísandi stjarna í leikhúsheimi Evrópu og kemur hingað með bæði nýja strauma og sterka hefð í farteskinu og tekst á við þetta stysta en mögulega magnaðasta verk Shakespeare ásamt einvala liði leikara og listrænna stjórnenda.
Leikhúskaffið er ókeypis, öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Guttormur Þorsteinsson, deildarbókavörður
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | s. 411 6204