Um þennan viðburð
Leikhúskaffi | Síðustu dagar Sæunnar
Matthías Tryggvi Haraldsson höfundur og Una Þorleifsdóttir leikstjóri segja gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á verkinu Síðustu dagar Sæunnar.
Í kjölfarið verður farið yfir í Borgarleikhúsið þar sem boðið verður upp á stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Í lokin býðst gestum svo 10% afsláttur af miðum á sýninguna.
Borgarbókasafnið Kringlunni og Borgarleikhúsið hafa boðið upp á leikhúskaffi í nokkur ár þar sem leiksýningar eru kynntar fyrir áhugasömum stuttu fyrir frumsýningu. Síðustu dagar Sæunnar er nýtt verk eftir Matthías en hann er fráfarandi leikskáld Borgarleikhússins og hlaut Grímuverðlaunin 2019 sem sproti ársins. Það er ljúfsárt leikrit um nánd og fjarlægð, dauðann, maukaðan elliheimilismat og leitina að sátt. Verkið verður frumsýnt 28. októkber.
Leikhúskaffið er ókeypis, öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Guttormur Þorsteinsson
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | s. 411 6204