
Um þennan viðburð
Klúbbur | Anime fyrir 13-16 ára
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.
Við hittumst á fimmtu hæðinni í Grófinni í myndasögudeildinni. Í klúbbnum gerum við margt skemmtilegt eins og að gera merki, spila borðspil, cosplay, spjalla um anime svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, teiknismiðjur, kynningar á Anime bókum og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!
Leiðbeinendur klúbbsins eru frá Íslenska myndasögusamfélaginu og Borgarbókasafninu og við leggja okkur sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og okkar mottó er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald, en skráning er nauðsynleg. Vinsamlegast sendið: Nafn, netfang og símanúmer til holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir Verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is