Um þennan viðburð

Tími
18:00 - 22:00
Verð
Frítt
Staður
Hallgrímskirkja
Skólavörðuholti
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir

Bókmenntaganga | Gengið um götur Mána Steins

Þriðjudagur 30. ágúst 2022

Gengið um sögusvið skáldsögunnar Mánasteins – og bókin lesin upp í heild sinni. Gangan hefst á Skólavörðuholti.

Hefur þig einhvern tímann langað til að fylgja uppáhaldssögupersónunum þínum eftir um götur Reykjavíkur? Dreymir þig um að vera persóna í verki eftir Sjón? Langar þig að kíkja inn á járnvörulagerinn á móti Stjórnarráðinu eða fylgjast með Kötlugosi ofan af Skólavörðuholti? Eða langar þig kannski bara í hressandi bókmenntakvöldgöngu með í góðum félagsskap? Þá er þessi ganga á söguslóðir skáldsögunnar Mánasteins – sem gerist í Reykjavík haustið 1918 – eitthvað fyrir þig.

Í tilefni sextugsafmælis Sjóns efna Kristín Svava Tómasdóttir, skáld og sagnfræðingur, og Ásta Kristín Benediktsdóttir bókmenntafræðingur til kvöldgöngu í samvinnu við Borgarbókasafnið þar sem hin feykivinsæla sögulega skáldsaga, Mánasteinn (2013), verður lesin upp í heild sinni.

Gangan hefst á Skólavörðuholti (við Hallgrímskirkju) klukkan 18 og staldrað verður við á vel völdum stöðum, þar sem aðalpersónan Máni kemur við, á meðan sögunni vindur fram. Reiknað er með að gangan taki um 3–4 klukkustundir. Gestir eru hvattir til að taka með sér nesti og heitt á brúsa, hlý föt og jafnvel teppi eða útilegustóla. Öllum er heimilt að koma og fara að vild, ganga stuttan spöl eða langan, en reglulegar uppfærslur um framvindu göngunnar verða settar inn á Facebook-viðburðinn. Áhugasömum upplesurum er einnig velkomið að lesa kafla.

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar:
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, verkefnastjóri
halla.thorlaug.oskarsdottir@reykjavik.is