Liðnir viðburðir
Forritun fyrir stelpur | 9-13 ára
Laugardagur 20. nóvember 2021
Leiðbeinendur frá Skema í HR kynna unga stelpuforritara spennandi heim micro:bit í tilefni af afmæli uppfinningakonunnar Hedy Lamarr. Micro:bit býður upp á fjölbreyttar leiðir til að kynnast grunnhugtökum í forritun á auðveldan og umfram allt skemmtilegan hátt.
Hægt er að forrita einfaldar skipanir á örtölvuna eins og myndir, hljóð og stafi en auk þess er hægt að búa til flóknari skipanir á micro:bit svo að tölvan nýtist sem áttaviti eða skilaboðamóttakari, svo fátt eitt sé nefnt.
Smiðjan er ókeypis en skráning er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir:
Justyna Irena Wilczynska, justyna.irena.wilczynska@reykjavik.is
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41