FULLBÓKAÐ! - SÖGUR – Tónsmíðar | 9-12 ára
Staðsetning: Verkstæðið, 5. hæð.
Borgarbókasafnið í samstarfi við Sögur- Verðlaunahátíð barnanna býður börnum frá aldrinum 9-12 ára að læra að búa til sitt eigið lag undir leiðsögn Jóhannesar Ágústs. Vegna mikillar mikillar ásóknar í námskeiðið sem haldið var í haust höfum við ákveðið að halda annað námskeið núna í nóvember.
Námskeiðið er þrjú skipti, sunnudagana 7.,14. og 21. nóvember.
Ath. Námskeiðið er fullbókað.
Hægt er að skrá sig á biðlista með því að senda tölvupóst á netfangið ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is
Dagskrá:
7. nóvember: Farið er yfir grunn í tónlistar- og textagerð og í hugmyndavinnu. (13:00-15:00)
14. nóvember: Börnin vinna að tónlist sinni í minni hópum (1 tími einhvern tíma á milli 13:00-16:30)
21. nóvember: Börnin leggja lokahönd á lagið sitt og undirbúa það til sendingar í samkeppni Sagna (1 tími einhvern tíma á milli 13:00-16:30)
Í lok námskeiðsins eru börnin hvött til þess að taka þátt í samkeppni Sagna. Eftir áramót verða þrjú lög valin og þau börn tækifæri að fullvinna lagið sitt með pródúsent og tónlistarmönnum. Lögin þrjú verða flutt á verðlaunahátíð Sagna næsta vor í beinni útsendingu á RÚV. Það er því til mikils að vinna!
Jóhannes Ágúst er nýlega útskrifaður úr B.A. námi í lagaskrifum og pródúseringu við Linnéuniversitet í Svíþjóð og starfar við tónlistargerð á Íslandi.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146