
Um þennan viðburð
Mínútumyndir / The One Minutes | RIFF á Borgarbókasafninu
Sérstakar sýningar á Mínútumyndum/The One Minutes í boði RIFF - Reykjavik International Film Festival sýndar á þremur stöðum á Borgarbókasafninu.
Mínútumyndir/The One Minutes er alþjóðlegt samstarf tileinkað hreyfimyndum. Allt frá árinu 1988 hafa Mínútumyndir framleitt og dreift meira en 17 þúsundum verkum frá listamönnum í yfir 120 löndum. RIFF er þakklátt Mínútumyndum fyrir gott og skapandi samstarf síðastliðin ár.
Í ár færum við áhorfendum þrjá nýja flokka:
MIND BODY PROBLEM / HUGSKROKKAVANDAMÁL
Samband anda og efnis er undir smásjánni – hvort um sé að ræða myndlíkingu, vandamál eða jafnvel aulabrandara.
Sýningarstjórn: Sander Breure & Witte van Hulzen
PAW / LOPPA
Kannað er samband dýra og ljóðlistar.
Sýningarstjórn: Ceel Mogami de Haas
AKARANI BONO AWOWA / HVAR SÉRÐU SÓLINA RÍSA OG SETJAST
Þátttakendur voru spurðir spurningarinnar: Hvar er sá staður þar sem þú getur séð sólarupprás og sólsetur? Svörin birta nánar svipmyndir.
Sýningarstjórn: Manuwi C. Tokai
Nánar um Mínútumyndir hér.
Viðburður á Facebook.
ÓKEYPIS AÐGANGUR
Staðsetning og tímasetningar:
Borgarbókasafnið Spönginni
Hugskrokkavandamál/Mind Body Problem, PAW/Loppa, Akarani Bono Awowa/Hvar sérðu sólina rísa og setjast
6. okt kl. 15.00-19.00
Borgarbókasafnið Kringlunni
Hugskrokkavandamál/Mind Body Problem, PAW/Loppa, Akarani Bono Awowa/Hvar sérðu sólina rísa og setjast
9. okt kl. 11.00-17.00 & 10. okt kl. 12.00-17.00
Borgarbókasafnið Grófinni
Hugskrokkavandamál/Mind Body Problem, PAW/Loppa, Akarani Bono Awowa/Hvar sérðu sólina rísa og setjast
10. okt kl. 11.00-17.00