Börn
Söngva- og sögustund með Svavari Knúti
Sunnudagur 21. nóvember 2021
Söngvaskáldið, sögumaðurinn og gleðigjafinn Svavar Knútur heimsækir okkur í skammdeginu. Svavar Knútur hefur getið sér gott orð fyrir lagasmíðar, fallegan flutning á sígildum íslenskum lögum og svo auðvitað fyrir sína skemmtilegu sviðsframkomu sem einkennist af innileika, einlægni, húmor og hlýju.
Verið öll velkomin, en vegna fjöldatakmarkana biðjum við gesti að skrá sig hér neðar á síðunni. ATHUGIÐ AÐ SKRÁ ÞARF ALLA GESTI NEMA BÖRN FÆDD 2016 OG SÍÐAR.
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, deildarbókavörður
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is
Sími: 411 6250