FULLBÓKAÐ | Sumarsmiðjur 13-16 ára | Manga teiknismiðja
Hvar: OKIÐ, efri hæð Gerðubergs
Hvenær: 28. júní - 2. júlí kl. 10-12
Hve margir: 10
Smiðjan er ókeypis en skráning er nauðsynleg þar sem plássin eru takmörkuð.
OPNAÐ VERÐUR FYRIR SKRÁNINGU 3. MAÍ
Manga námskeið fyrir eldri!
Í samstarfi við Íslenska Myndasögusamfélagið bjóðum við uppá námskeið þar sem kennt verður allt um að búa til sína eigin manga sögu. Hér gefst tækifæri til að kafa dýpra ofan í áhugamálið, æfa sig í manga-teikningu, sagnagerð og persónusköpun.
Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreyttar sumarsmiðjur fyrir börn og ungmenni í sumar.
Þessi smiðja fer fram í Okinu í Gerðubergi þar sem lögð er áhersla á að skapa vettvang fyrir ungmenni til sköpunar, fræðslu, sjálfstæðis og skemmtunar.
Frekari upplýsingar um smiðjuna veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, deildarbókavörður
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is