![Spilastund Spilastund](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/file_000.jpeg?itok=W6WatuUV)
Um þennan viðburð
Krakkahelgar | Borðspilafjör
Langar þig að eiga góða stund með fjölskyldu eða vinum og læra á nýja spilið sem þú fékkst í möndlugjöf en hefur ekki ennþá lagt í að lesa leiðbeiningarnar? Komdu þá að spila með okkur!
Í þessum fyrsta barnaviðburði Gerðubergs á árinu 2021 langar okkur að bjóða uppá spilastund undir leiðsögn spilasérfræðings frá Spilavinum. Við eigum gott úrval spila hér á safninu en einnig munu Spilavinir hafa meðferðis allskonar skemmtileg spil fyrir alla fjölskylduna.
Staðsetning viðburðar: Salurinn BERG, á efri hæð.
Hámarksfjöldi þátttakenda: Boðið er upp á að bóka 5 fjölskylduborð.
Sjá skráningarform neðst á síðunni.
Kaffihúsið er opið.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Bergrós Hilmarsdóttir, deildarbókavörður
bergros.hilmarsdottir@reykjavik.is | 411-6175