Tónlist
Syngjum saman
Mánudagur 17. maí 2021
Það verður sungið af hjartans lyst á bókasafninu á vormánuðum.
Anna Sigríður Helgadóttir söngkona leiðir samsöng gesta ásamt Erni Arnarsyni gítarleikara. Sumarið og vorið verður við völd í söngnum og allir ættu að geta tekið þátt enda lögin kunnugleg. Verið velkomin ungir sem gamlir og hver syngur með sínu nefi.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is s. 411 6250