
Um þennan viðburð
Jazz í Borgarbókasafninu | Beint á ská - streymistónleikar
Þessum viðburði er streymt á Facebooksíðu Borgarbókasafnsins
www.facebook.com/Borgarbokasafnid/live
Beint á ská er streymistónleikaröð sem Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari stendur fyrir, í samvinnu við Borgarbókasafnið og Tónlistarsjóð.
Tónleikarnir eru sjálfstætt framhald af tónleikaröðinni Jazz í hádeginu sem notið hefur mikilla vinsælda.
Á þessum fyrstu tónleikum Beint á ská, kemur fram hljómsveitin GH gypsy tríó. Tríóið skipa þeir Gunnar Hilmarsson á gítar, Jóhann Guðmundsson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa. Þeir flytja okkur ný og gömul lög í jazz manouche stíl.
Góðar stundir!
Leifur Gunnarsson er listrænn stjórnandi Beint á ská
Viðburður á facebook
Nánari upplýsingar:
Leifur Gunnarsson
leifurgunnarsson@gmail.com
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | S: 4116122