Innkaupatillaga
Er bókin sem þig langar til að lesa ekki til á bókasafninu? Eigum við ekki vínylinn sem þig langar að hlusta á? Láttu okkur vita hvað þú vilt sjá á bókasafninu og við sjáum hvort við getum uppfyllt óskir þínar.
Það er rétt að taka það fram að við getum ekki orðið við öllum tillögum og biðjum notendur að takmarka innsendar tillögur við 4 á mánuði. Mikilvægt er að vanda valið vel áður en tillaga er send inn.
Stjörnumerkta reiti er nauðsynlegt að fylla út, annað er valkvætt en nákvæmari upplýsingar hjálpa okkur að finna það sem þú leitar að.
Að gefnu tilefni viljum við taka fram að Borgarbókasafn er almenningsbókasafn og því eru kennslubækur og mjög sérhæft efni almennt ekki hluti af safnkosti þess.