Krakkahelgar | LittleBitssmiðja fyrir 8-12 ára
LittleBits eru litlir kubbar sem hægt er að tengja saman og byggja úr þeim skemmtileg verkefni. Kubbarnir eru tengdir við rafhlöðu sem leiðir straum milli þeirra sem opnar fyrir margskonar virkni kubbana í formi hreyfinga, ljósa og hljóða. Börn yngri en 8 ára eru einnig velkomin en þá í fylgd með fullorðnum.
ATH Þessi smiðja er tvísetin og er bæði hægt að skrá sig klukkan 13:30-14.30 og klukkan 14:45-15:45
Þátttaka er ókeypis en plássið er takmarkað og því er skráning nauðsynleg.
Skráning hér
Krakkahelgar eru alltaf 2. laugardag í mánuði á Borgarbókasafninu í Kringlunni. Þá er boðið upp á fjölskylduvænt andrúmsloft og dagskrá fyrir börn.
Sjá viðburð á Facebook | Info in English on Facebook
Nánari upplýsingar veitir:
Rut Ragnarsdóttir
rut.ragnarsdottir@reykjavik.is | 4116210