Bókmenntaganga í Hafnarfirði

Bókmenntagangan í Hellisgerði

Hérna er hugmynd að Bókmenntagöngu í Hafnarfirði þar sem Bókmenntagönguspjöldin eru notuð. 

Gangan byrjar hjá Bókasafni Hafnarfjarðar. Þar er hægt að lesa textann um bókasöfn en færi gefst einnig aðeins seinna í þessari tillögu. 

Labbað yfir götuna að Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem er Ráðhús stoppið okkar.

Rölt upp götuna, beygt til vinstri upp Linnetsstíginn að Fríkirkjunni í Hafnarfirði þar sem textinn Kirkja, Kirkjugarður er lesinn. 

Hægt er að taka aukastopp við Mjósund til þess að sjá gamla bókasafnið og það er líka hægt að lesa bókasafnstextann þar ef hann er ekki lesin við Bókasafnið. 

Því næst er rölt að Læknum. Þar er hægt að taka stoppið Tjörn, á eða sjór. Mælt er með því að stoppa líka við Hamarskotslæk undir brúnni og skoða sýninguna Köldu ljósin í leiðinni en hún var sett upp í tilefni 120 ára afmælis fyrstu almenningsrafveitunnar á Íslandi. 

Þegar komið er upp hinum megin við lækinn sést Lækjarskóli vel hinum megin og það er gott Skólastoppið.

Þá er gengið áfram að Suðurgötu 7 þar sem stoppið Félagsheimili, skemmtistaður er tekið hjá Gúttó. Góðtemplarahúsið, í daglegu tali kallað Gúttó, var fyrsta eiginlega samkomuhús Hafnfirðinga og um langan tíma miðstöð allrar menningar í bænum.

Síðan er labbað að sjónum þar sem er æðislegt að ganga og skoða ljósmyndasýningu í leiðinni að næsta stoppi. Stoppað er við sjóinn og bent að Pylsuvagninum fyrir stoppið Sjoppa, veitingastaður. 

Því næst er gengið meðfram Norðurbakkanum til þess að koma að Pakkhúsinu og/eða Síversen húsinu sem geta bæði passað við stoppið Fiskvinnsla, verksmiðja.

Svo er gengið meðfram Reykjavíkurvegi að Hellisgerði þar sem er endað í stoppinu Falleg náttúra.

Þetta ætti að skila sér í u.þ.b. 1,5 klst ánægjulegri göngu. 

Kort af göngu um Hafnarfjörð

Bækur og annað efni