
Um þennan viðburð
Tími
15:00 - 16:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska, English
Fræðsla
Samtal um kjarnasamfélög
Laugardagur 18. apríl 2026
Kjarnasamfélag Reykjavíkur býður þér í samtal um hvernig kjarnasamfélag (e. co-housing) gæti litið út á Íslandi.
Kjarnasamfélög eru til víðsvegar um heiminn og eru byggðarlag þar sem íbúarnir móta saman hugsjón og sameinast um skipulagningu, allt frá hönnun húsnæðisins og nærumhverfis til innra skipulags.
Nýlega opnaði Reykjavíkurborg fyrir hugmyndasamkeppni um kjarnasamfélög á völdum lóðum í borginni. Okkur langar að bjóða áhugasömum að glöggva sig á hvað kjarnasamfélög eru og koma sínum hugmyndum á framfæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Embla Vigfúsdóttir