Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
10-12 ára
Tungumál
Íslenska
Börn

Sumarsmiðja | Hreyfimyndagerð með Mörtu

Mánudagur 15. júní 2026 - Þriðjudagur 16. júní 2026

Viltu læra meira um hreyfimyndir (e. stop-motion) og prófa búa til þitt eigið myndband? 

Marta Björk, listamaður, mun leiða skemmtilega hreyfimynda smiðju fyrir áhugasama krakka. Í smiðjunni kynnumst við möguleikum stop motion hreyfimyndagerðar. Við skoðum hvernig er hægt að nota alls konar hluti í að búa til skemmtileg myndbönd og hvernig við getum búið til okkar eigin persónur til að leika í þeim. 

Krakkarnir fá tækifæri til að búa til sína eigin brúðu og láta hana lifna við með stop motion hreyfimyndagerð. Eftir námskeiðið ættu allir að geta haldið áfram að búa til sín eigin stop motion myndbönd heima. 

 

Marta Björk Atladóttir er hreyfimyndagerðarkona og brúðusmiður. Hún lærði teiknimyndagerð í Leeds Arts University og er nemandi í listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Útskriftarmyndin hennar, Inked In, hlaut verðlaun fyrir hönnun frá Royal Television Society Yorkshire Awards. 

 

Tími: Smiðjan er dagana 15. og 16. júní á milli kl. 10:00-12:00 

Aldur: Fyrir börn fædd 2014, 2015 og 2016 

 

Opnað verður fyrir skráningu  28. apríl. 

 

Nánari upplýsingar, 

Tinna Birna Björnsdóttir, sérfræðingur 

tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is